Skrifstofa
Íbúðir
Námsmenn
Almennur markaður
Upplýsingar
Atvinnuhúsnæði
Tenglar
Fréttabréf
Heim
Fréttir
 
Byggingafélag námsmanna auglýsir íbúðir á almennum markaði
Byggingafélag námsmanna auglýsir íbúðir á almennum markaði
 


Almennar upplýsingar

Byggingafélag námsmanna ses, sjálfseignarstofnun með sjálfstæðan fjárhag. Annast kaup og uppbyggingu húsnæðis til rekstrar stúdentagarða í þágu námsmanna. Hlutverk þeirra er að bjóða námsmönnum í nemendafélögum innan BN til leigu hentugt og vel staðsett húsnæði. Húsnæðið er af ýmsum stærðum og gerðum. Boðið er uppá eins- og tveggja manna herbergi, einstaklingsíbúðir (studio), tveggja herbergja íbúðir (paríbúðir) og þriggja herbergja íbúðir.


Umsóknir

Umsóknum um íbúð þarf að skila með rafrænum hætti á umsóknarformi sem er að finna undir flipanum "Umsókn" í aðalvalmynd heimasíðunnar hér til vinstri. Nýnemar geta ekki sótt um húsnæði hjá Byggingafélagi námsmanna fyrr en eftir að þeir hafa sótt um skólavist og staðfesting um skólavist liggur fyrir. Aðrir nemendur geta sótt um íbúð hvenær sem er ársins. Með því að senda inn umsókn sína gefur umsækjandi Byggingafélagi námsmanna heimild til að sannreyna uppgefnar upplýsingar og senda inn fyrirspurn um húsnæðiseign sína til Fasteignamats ríkisins, fjölskyldustærð eða barnafjölda til Hagstofu Íslands og greiðslu skráningargjalda til viðkomandi skóla.


Úthlutanir

Húsnæði er úthlutað til eins árs í senn. Stuðst er við úthlutunarreglur Byggingafélags námsmanna við úthlutun húsnæðis (sjá Reglur undir Umsókn). Skrifstofa Byggingafélags námsmanna sendir umsækjendum tilkynningu um úthlutun eða biðlistanúmer með rafrænum hætti á það tölvupóstfang sem skráð er á umsóknina. Úthlutun og veru á biðlista skal staðfesta á heimasíðu félagsins fyrir tiltekinn tíma.


Samningar

Úthlutunarhafi gengur frá ábyrgðartryggingu í banka og skrifar undir leigusamning áður en húsnæðið er afhent. Samningarnir eru gerðir til eins árs í senn og endurnýjast að þeim tíma liðnum að uppfylltum skilyrðum úthlutunarreglna (sjá Reglur undir Umsókn). 

 

Þremur mánuðum fyrir lok leigusamnings sendir Byggingafélag námsmanna leigjendum áminningu í tölvupósti um að óska eftir endurnýjun leigusamnings (sækja um framhaldsleigu) sem leigjandi skal framfylgja innan þess tímafrests sem tiltekinn er.  ER ÞAÐ ÞÓ Á ÁBYRGÐ LEIGJANDA SJÁLFS AÐ FYLGJAST MEÐ LEIGULOKUM OG SENDA INN UMSÓKN UM FRAMHALDSLEIGU.  Berist umsókn ekki innan tiltekins tíma er litið svo á að umsækjandi ætli að flytja út við lok leigutímabils og er íbúðinni þá úthlutað þeim sem næstur er á biðlista.

 

Ganga þarf frá endurnýjun ábyrgðartryggingar og undirritun samnings á skrifstofu félagsins innan 10 daga frá því að framhaldsleiguumsókn er samþykkt. Sé ekki gengið frá samningi  fyrir tilskilinn tímafrest verður samningurinn ekki endurnýjaður.  Við umfjöllun framhaldsumsóknar er tekið tillit til greiðslusögu og þess hvort kvartanir hafa borist um leigjendur.


Húsgögn

Húsgögn og búnaður er leigður með nokkrum íbúðum á Laugarvatni, sem greitt er mánaðargjald fyrir.


Flutt í nýtt húsnæði

Áður en flutt er inn hefur umsjónarmaður fasteigna samband við leigjendur og lætur vita hvenær húsnæðið er tilbúið til afhendingar. Við móttöku húsnæðis framvísar leigutaki undirrituðum leigusamningi eða skilríkjum. Umsjónarmaður fasteigna gerir úttekt á húsnæðinu við hver leigjendaskipti og skrifar nýr leigjandi undir úttekt umsjónarmanns þar sem hann samþykkir ástand húsnæðisins. Leigjandi fær síðan 7 daga frest til að gera athugasendir við úttektina. Athugasemdunum ef eitthverjar eru skal skila á sérstöku eyðublaði sem leigjandi fær við móttöku húsnæðisins. Að þeim tíma liðnum er litið svo á að úttekt umsjónarmanns sé samþykkt.


Uppsögn/skil á húsnæði

Leigusamningar eru tímabundnir samningar og eru ekki eru uppsegjanlegir að hálfu leigjanda nema með samþykki Byggingafélags námsmanna. Húsnæði er sjálfkrafa sagt upp við lok leigusamnings. Þeir sem hyggjast búa áfram í viðkomandi íbúð þurfa að skila inn nýjum undirrituðum leigusamningi sem Byggingafélag námsmanna útvegar fyrir tilskilinn tíma.

 

Ef húsnæði er sagt upp áður en leigutíma lýkur skal nota þar til gert uppsagnarform á heimasvæði leigjandans. Byggingafélag námsmanna áskilur sér rétt á allt að þriggja mánuða uppsagnafresti á leigutímabilinu.

 

Uppsagnarfrestur styttist ef skrifstofa félagsins getur útvegað nýjan íbúa fyrr, en verður þó aldrei styttri en einn mánuður talið frá næstu mánaðarmótum eftir uppsögn.

 

Umsjónarmaður fasteigna framkvæmir úttekt þegar íbúð hefur verið tæmd og þrifin. Íbúi undirritar úttektarblað og umsjónarmaður afhendir frumrit til skrifstofu Byggingafélags námsmanna til lokauppgjörs.

 

Ekki er gengið frá uppgjöri fyrr en úttektareyðublað og greiðslukvittun fyrir síðustu mánaðarleigu liggja fyrir.


Kostnaður - umsýslugjöld

Umsýslugjald er innheimt við útgáfu leigusamnings. Gjald þetta sem er 4.000.- krónur greiðist árlega og er ekki endurgreitt. 

 

Ef leigjendur óska eftir flutningi milli íbúða er innheimt leiga fyrir flutningsgjald að upphæð 10.000 kr. í viðbót við áðurnefnd gjöld (sjá nánar reglur)


Húsaleigubætur

Hægt er að sækja um húsaleigubætur fyrir allar leigueiningar Byggingafélags námsmanna. Leigjendur þurfa sjálfir að þinglýsa leigusamningi og sækja um húsaleigubæturnar hjá réttum aðilum.

Notandi
Lykilorð
Tilvísunarnr.




Byggingafélag námsmanna - Háteigsvegi 7, 2 hæð pósthólf 5480, 125 Reykjavík. Kt. 700707-0750 Sími: 552 6210 - Fax: 562 2909