Samið um byggingu 100 nýrra íbúða við Stakkahlíð í Reykjavík

27.12.2019

Í dag, 27.desember, undirrituðu Byggingafélag Námsmanna og Alverk ehf. samning um byggingu á 100 námsmannaíbúðum sem rísa munu við Bólstaðarhlíð og Austurhlíð í Reykjavík. Hluti íbúðanna eru svokallaðar "Co-living" íbúðir sem þýðir að þar deila íbúar sameiginlegu eldhúsi og stofu. Samtals skila þessar 100 íbúðir 126 leigurýmum fyrir um 150 íbúa.

Samningurinn er í alverktöku og snýr því bæði að hönnun og byggingu íbúðanna. Framkvæmdir munu hefjast á vormánuðum 2020 og alls nemur byggingarmagnið 5.770 birtum fermetrum. Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið lengi en útboð vegna verkefnisins fór fram í mars 2018, þar sem Alverk varð hlutskarpast bjóðenda.

Íbúðirnar eru fjármagnaðar með stofnframlagi frá Reykjavíkurborg og Íbúðalánasjóði f.h. ríkisins og byggðar skv. reglum um almennar íbúðir. Eigandi verkefnisins er sjálfstætt undirfélag BN, Stakkahlíð hses. og nemur samningsupphæð tæpum 2.500 milljónum króna en heildarkostnaður verkefnisins er um 2,8 milljarðar króna.

Aðalhönnuðir verða Arkþing / Nordic ehf. og verkfræðihönnun er í höndum Vektors ehf.

Til baka

Myndir með frétt