Afgreiðsla eftir 4.maí

27.04.2020

Kæru leigjendur

Byggingafélag Námsmanna mun áfram aðeins sinna afgreiðslu með rafrænum hætti eftir 4.maí, þrátt fyrir tilslökun á reglum vegna Covid-19, að minnsta kosti fyrst um sinn.

Símaafgreiðsla er alla virka daga frá kl. 10-14

Tölvupóstum er svarað alla virka daga eins fljótt og auðið er.

Skólagögn og tryggingar vegna leigusamninga sendast rafrænt á bn@bn.is

Allar undirritanir á samninga fara fram með rafrænum undirskriftum og þurfa leigjendur að vera með rafræn skilríki í símanum til að geta skrifað undir.

Til baka