Sérstök úrskurðarnefnd stofnuð til meðferðar ágreiningsmála

11.06.2025

Á síðasta aðalfundi Byggingafélags námsmanna var ákveðið að stofna úrskurðarnefnd sem tekið gæti afstöðu í ýmsum ágreiningsmálum sem upp kunna að koma milli leigutaka og félagsins. Með stofnun nefndarinnar er regluverk Byggingafélagsins fært nær því sem m.a. hefur verið m.a. hjá Félagsstofnun stúdenta og hjá Háskólanum í Reykjavík. Stjórn Byggingafélagsins gerði breytingar á Úthlutunarreglum félagsins á fundi sínum nú í morgun til samræmis við þessa ákvörðun. 

Grein 10.2 í úthlutunarreglum BN hljóðar því nú þannig : 

Hafi umsækjandi athugasemdir við úthlutun eða afgreiðslu skrifstofu BN getur hann skotið ágreiningi eða athugasemdum sínum til Úrskurðarnefndar Byggingafélags námsmanna.

Nefndin skal taka erindi umsækjanda til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar en að jafnaði skal miða við að umsækjandi fái svar við erindi sínu eigi síðar en 4 vikum frá því að erindi barst á skrifstofu BN. Nefndin sker úr öllum ágreiningsmálum sem upp koma varðandi umsóknir, úthlutanir og önnur atriði er varða umsækjendur, leigutaka og skrifstofu BN.

Stjórn BN skal skipa 3-5 einstaklinga til setu í nefndinni.

Niðurstaða nefndarinnar er endanleg.

 

Til baka