Stefna Byggingafélags námsmanna (BN) í jafnréttismálum er að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna innan vinnustaðarins. Í áætluninni eru sett upp markmið og aðgerðaráætlanir til að ná þessum markmiðum. Jafnréttisáætlunin gildir fyrir allt starfsfólk BN.
Jafnréttisáætlunin er sett fram samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr.150/2020, og annarra laga og reglna er snúa að jafnrétti.
Markmið
BN leggur áherslu á jafnan rétt kynjanna til launa, stöðuveitinga og starfsþjálfunar og endurmenntunar meðal allra starfsstétta BN. Starfsfólk BN skal ennfremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum.
Eftirfarandi eru markmið BN:
- Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni
- Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
- Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
- Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
- Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna
- Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum.
Endurskoðun jafnréttisáætlunar BN
Unnið verður að stöðugum umbótum á stefnunni, henni fylgt eftir og brugðist við ef ástæða er til. Endurskoðun stefnunnar fer reglulega fram, ekki sjaldnar en einu sinni á ári í tengslum við yfirferð á jafnlaunakerfinu er tengist jafnlaunavottun. Mikilvægt er að markmið og aðgerðaráætlanir séu í samræmi við daglegt starf í BN.
Jafnréttisáætlun BN gildir til lok árs 2024.
Samþykkt af stjórn BN 17.mars 2022
Samþykkt af Jafnréttisstofu 7.mars 2022